
Sökkull ehf. er bygginga- og innflutningsfyrirtæki sem tók til starfa í janúar 1975 . Stofnendur Sökkuls voru Gylfi og Haraldur Lárussynir en núverandi eigandi er Axis ehf.
Fyrirtækið sinnir almennri byggingaþjónustu og rekur fullkomið trésmíðaverkstæði og sérhæfir sig í að þjóna fyrirtækjum og opinberum aðilum, en einnig einstaklingum. Sökkull hefur sérhæft sig í innanhússfrágangi síðastliðin 20 ár og innflutningi á byggingarefni til innanhússnotkunar svo sem veggjum, loftum, hurðum, felliveggjum og ýmsum vörum sem ekki eru framleiddar hérlendis. Má þar einnig nefna eldvarnarhurðir, eldvarnar- og reyktjöld ásamt kerfisveggjum úr ýmsum efnum eins og sjá má annarstaðar á vefsíðunni. Sökkull hefur einnig sérhæft sig í smíðum á allskonar innréttingum fyrir verslanir, stofnanir og heimili.
Verkefni okkar hjá Sökkli hafa skipt hundruðum í gegn um árin og má sjá hluta af þeim verkum annarstaðar á heimasíðunni.
Höfuðstöðvar Sökkuls, skrifstofa og verkstæði eru nú að Smiðjuvegi 9, Kópavogi þar sem við deilum 4300 m2 húsnæði með núverandi eiganda fyrirtækisins, Axis ehf.. Hjá fyrirtækinu starfa 11 manns og hafa sumir starfað hjá fyrirtækinu frá stofnun þess. Haraldur Lárusson stýrir sölunni en verkstæðinu stjórnar Kristján Bjartmars.